Wepp 2055 Bremsufeiti

Wepp 2055 Bremsufeiti

Venjulegt verð
3.012 kr
Söluverð
3.012 kr
Með VSK

WEPP 2055 Bremsufeitin er sérstakt virkt efni fyrir bremsukerfið.
Það kemur í veg fyrir ískur og ryðmyndun, heldur klossunum lausum og liðugum í
haldaranum og hægt er að nota það framan á hjólnafið svo felgur festist ekki við
nafið. Wepp 2055 er háþróað keramik agna byggt efni sem þolir hitann mjög vel
og skolast ekki í burtu við salt og vatn sem sem skvettist á bremsukerfið.
Langtíma vörn gegn ískri og ryðmyndun í bremsukerfinu.


Eiginleikar:
● Byggt á keramik ögnum
● Þolir mikinn hita og kulda
   (gott fyrir Íslenskar aðstæður)
● Þolir salt og vatnsskvettur
● Þornar aldrei upp og verður alltaf teygjanlegt
● Mjög góð vörn gegn ryði og tæringu
● Einfaldar næstu bremsuklossaskipti
● Hefur engin áhrif á ABS kerfið

Notkun:
Mælt er með því að nota efnið ef það er ískur í bremsunum á
lágum hraða til dæmis þegar bíllinn er alveg að stoppa á ljósum.
Ver bremsuklossana gegn ryðmyndun sem gerir næstu
bremsuklossaskipti einfaldari. Ver það að felgur festist á hjólnafinu.
Hristið brúsann í að minnsta kosti 30 sekúndur, fituhreinsið bakhlutann og sætin á
bremsuklossunum og úðið svo efninu jafnt á allan bakflötinn.
Leyfið efninu að standa í 5 mínútur áður en klossarnir eru settir í.
Gætið þess að sprauta jöfnu lagi á flötinn.

Inniheldur:
400ml