Kvikk þjónustan með ódýrustu umfelgunina
Verðsamanburður Gaflara.is á dekkjum og umfelgun leiddi í ljós að allt að 40% munur er á verði dýrustu og ódýrustu dekkjanna.
Veðrið hefur svo sannarlega leikið við höfuðborgarbúa það sem af er hausti. Fæstir eru sennilega farnir að huga að vetrardekkjunum en slíkt fer að verað tímabært. Veðurfræðingar gera ráð fyrir því að veður kólni með tilheyrandi hálku. Gaflari.is kynnti sér veðmun á umfelgun og dekkjum á dekkjaverkstæðum í Hafnarfirði. Kannað var hvað kostar að kaupa fjögur ný dekk
Undir venjulegan fólksbíl og jeppling og munurinn var sláandi.
Pitstop voru með ódýrustu dekkin undir fólksbíla, heilsárs sem og negld en hjá þeim kostuðu fjögur heilsárs dekk hjá þeim 46.764 kr. og negld dekk 54.284 kr. BJB pústþjónustan var hins vegar með ódýrustu jepplinga-dekkinn en fjögur heilsársdekk kostuðu 114.800 kr. á meðan negldu dekkin kostuðu 122.200 kr. Kvikkþjónustan var með ódýrustu umfelgunina á 5.300 kr.
Munurinn á hæsta og lægsta verði eru eftirfarandi:
- Umfelgun - 17,57%
- 15” heilsársdekk - 25,71%
- 15” nagladekk - 39,59%
- 17” heilsársdekk - 23,22%
- 17” nagladekk - 35,63%
Grein sem birt var á gaflari.is
